|
Nýlenda Stafneshverfi Mynda og bloggsíða Arnbjörns Eiríks ( Bjössa) |
|
24.01.2012 22:15Roði í lofti.
Skrifað af Bjössa 22.01.2012 19:27Blíðu veður í dag hér.Það er búið að vera bliða hér í Stafneshverfinu í dag. ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Bjössa 14.01.2012 17:42Í dag 14 janúar.Nokkrar myndir teknar í Sandgerðishöfn í dag. ![]() Þórsnes II SH 109 í Sandgerðishöfn. ![]() Lúkas ÍS 71. á ferð um höfnina ![]() Magnús GK 64. eitthvað að skottast líka. ![]() Bergur Þór Eggertsson (Tölvuséní) var um borð í Arnþór GK 20. eitthvað að líta á tölvubúnaðinn. Skrifað af Bjössa 12.01.2012 19:17Hákon Tómasson GK 226.Það var sorgarfrétt sem Heiðar í Nýlendu í Hvalsneshverfi hringdi í mig og sagði mér að báturinn hans Hákon Tómasson GK 226 (5871) hefði slitnað upp áf legunni og nánast eyðilagst í óveðrinu sem gekk yfir hér í fyrradag. Ég kom við hjá Heiðari í dag og fór með honum að skoða aðstæður. Hákon Magnússon á Nýlendu í Hvalsneshverfi lét smíða þennan bát fyrir sig og réri á honum í fjölda ára á grásleppu og handfæri. Ég átti því láni a fagna að fara í einn grásleppuróður með honum . Þá var Hákon kominn hátt á nýræðis aldur. Það var ánæjuleg sjóferð og hafði ég mikið gagn og gaman að. Hákon lést fyrir nokkrum árum. Blessuð sé minning Hákons Magnússonar. ![]() ![]() Ótrúlegt en skrokkurinn er lítið brotinn. Böndin úr eik en borðin úr furu. ![]() Stýrishúsið hefur sópast af. ![]() Legufærið, netatrossa og stefnið sem fór úr bátnum. En legufærið hélt en stefnið fór úr bátnum þvílík læti hafa verið. ![]() Björgunarbáturinn var uppblásinn. Skrifað af Bjössa 03.01.2012 20:223 dagur janúar.Tók nokkrar myndir í dag. ![]() Vinna við stækkun hjá Nesfisk. ![]() Utan við Þurrkhúsið hjá Nesfisk. ![]() Vélstjórinn hjá frystihúsi Nesfisks. Friðbjörn Júlíusson (Fribbi) vígalegur þarna:) ![]() Reynar Einarsson að skafa skjóna:) Skrifað af Bjössa 02.01.2012 22:01Janúar.Þá er áramótin liðin og vinnuvikan hafin á nýju ári og er nú dálítið kalt í veðri en gott veður hér á nesinu. ![]() Byrjaði nýjársdag á að fara með Ómari Ólafssyni til að hjálpa Japönum að losa bíl sem þeir höfðu fest í snjó. ![]() Svo var vinnan í morgun. Það þurfti að moka úr hjöllum. Sigurður Hreinsson vígalegur þarna. Baldvin Bergþórs að moka og bræðurnir Guðmundur og Guðbergur Magnússynir að fara að taka inn hausa. ![]() Hjallarnir draga alltaf að sér snjó þegar skefur. Skrifað af Bjössa 01.01.2012 02:19Áramótakveðja. Ég óska öllum sem heimsækja síðuna gleði og gæfuríks árs með þökk fyrir það liðna. Og munið. Von, trú og kærleikur, þeirra er kærleikurinn mestur . Áramótaknús á alla Arnbjörn Eiríksson. ![]() Mynd: Stafnes 31 des 2011. Skrifað af Bjössa 31.12.2011 15:50Gamlársdagur 2011Þá er þessu ári að ljúka og síðasta færsla þessa árs hér. ![]() Stafnesvitinn í dag. ![]() Sandgerðishöfn í dag. ![]() Bálköstur Garðmanna. ![]() Njarðvíkurhöfn í dag. ![]() Keflavíkurhöfn í dag. ![]() Bálköstur Sandgerðinga í dag. Fleiri myndir í albúmi. Skrifað af Bjössa 29.12.2011 18:33Ófærð.Það er búið að vera heldur leiðinlegt að þurfa að sinna útiverkum hér í Desember og er langt síðan veðráttan hefur verið með þessum hætti svo snemma veturs. ![]() Ekkert hægt að komast í hjalla nema moka. ![]() ![]() Á morgnana er búið að vera afleitt færi héðan, en hef samt komist í vinnuna með herkjum á mínum gamla jeppa. Skrifað af Bjössa 26.12.2011 23:18Annar dagur jóla.Þá er jólafríið búið þessi jólin og vinnan tekur við í fyrramálið enda óvenjulega lítið frí vegna þess að jólin eru um helgi að þessu sinni. Einungis einn frídagur. En ég er búinn að hafa það fínnt þessa daga með fjölskyldunni. Allar myndirnar sem ég tók þessi jól eru komnar í albúm hér á síðunni. ![]() Það gekk á með éljum þegar ég átti leið um Sandgerðishöfn í dag. ![]() ![]() Og það var hálf kuldalegt við vinnustaðinn þegar ég fór í eftirlitsferð þangað. ![]() Hestar við Norðurkot. Skrifað af Bjössa 26.12.2011 00:06Jóladagur í Nýlendu.Það er búið að vera leti líf hjá mér í dag. Hluti af fjölskyldunni verið hér og verið góður dagur hjá okkur. ![]() Hlíf með sína gullmola. ![]() Afa grísirnir að misþyrma afa sínum. ![]() ![]() Fjölskylduspilið sem ég fékk var prófað. Fleiri komnar í albúm. Skrifað af Bjössa 25.12.2011 00:45Jólin í Nýlendu.Tók nokkrar myndir hér í dag og kvöld og setti í albúm. ![]() ![]() ![]() Hlíf með grísina sína. Thelmu Dís og Aron Darra. ![]() Aron og Þórunn Anna. ![]() Svo voru opnaðir pakkar. Elín. Díana Guðrún og Aron. Meira í albúmi. Skrifað af Bjössa
Flettingar í dag: 114 Gestir í dag: 41 Flettingar í gær: 183 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 395799 Samtals gestir: 104961 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:16:12 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Arnbjörn EiríkssonFarsími: 8937281Tölvupóstfang: arnbje@mi.isAfmælisdagur: 260750Heimilisfang: Nýlenda 2 StafnesiStaðsetning: SandgerðiHeimasími: 4237600Tenglar
|