|
Nýlenda Stafneshverfi Mynda og bloggsíða Arnbjörns Eiríks ( Bjössa) |
|
Færslur: 2012 Febrúar29.02.2012 20:18Allt á fullu.Það er allt á fullu hjá Nesfisk-mönnum að græja nýja lausfrystinn og það sem því tilheyrir ásamt því að vera með vinnsluna á fullu gasi. Frystirinn sem er fyrir er keyrður allan sólahringinn oft á tíðum þegar mikið berst að. ![]() ![]() Allir hjálpast að og hér eru einhverjir frá þurrkhúsinu að flytja nýjar græjur frá Marel sem verða notaðar við línuna. Það eru margföldunaráhrif af svona framkvæmdum og skapar mörgum vinnu. ![]() Svo sér maður þennan eins og strædó á hverjum degi fara hjá á leið sinni í Helguvík. Skrifað af Bjössa 28.02.2012 18:49Alpha HF 32 (1031) Bræludagur. Helguvík á sjötta tímanum í dag. ![]() Alpha HF 32 í Helguvík. ![]() Alpha og Erika í Helguvík í dag. ![]() Eitthvað hefur nótin rifnað hjá strákunum í brælunni því þeir eru þarna í viðgerð á henni. ![]() Helguvík síðdegis 28 febrúar 2012. Skrifað af Bjössa 27.02.2012 19:32Flotinn nálgast Stafnesið.Loðnuskipin blöstu við hér frá Stafnesinu þegar ég kom heim í kvöld og eru þeir út af Hafnarberginu og virtust flest öll vera búin að kasta. Það er heldur langt til að ná góðum myndum á þær græjur sem ég er með en gerði samt tilraun. Skrifað af Bjössa 26.02.2012 22:55Sunnudagsrúntur.Við Stulli vinur minn tókum smá rúnt í dag um svæðið og tókum nokkrar myndir af loðnubátum sem voru hér að fara um. ![]() Erika Gr18-119 að fara fyrir Reykjanesið. ![]() Guðmundur VE 29 að fara fyrir Garðskaga. ![]() Jóna Eðvalds SF 200 að fara fyrir Garðskaga. ![]() Garðskagi og sér í 3 báta hverjir eru það? ![]() Fleiri myndir í albúmi. Skrifað af Bjössa 25.02.2012 20:08Finnur Fríði og Erika.Finnur Fríði FD 86 við Garðskaga í dag. Skrifað af Bjössa 25.02.2012 17:49Enn er mokafli á línuna.Það er ekkert lát enn á aflabrögðum línubátana sem róa frá Sandgerði. Kíkti á bryggjuna í dag á leið heim úr vinnunni og tók nokkrar myndir. Skrifað af Bjössa 24.02.2012 20:14Flottir frændur okkar Færeyingar.Tók hring í Keflavík og smellti nokkrum myndum af Finni Fríða eftir vinnu í dag og einnig nokkrum af Nordborg sem var í vari í Garðsjó en þeir eru ekki svo oft hér Færeyingarnir, en eru ávallt auðfúsugestir hér. ![]() Flott skip hjá vinum okkar Færeyingum. ![]() ![]() ![]() Nordborg í Garðsjó 24 febrúar. ![]() ![]() Skrifað af Bjössa 23.02.2012 21:48Hverjum er Júbbinn að mæta? Til gamans. Hverjum var Júpiter að mæta í ljósaskiptunum í kvöld út af Stafnesi? ![]() Það rétt grillir í hann aftan við Júpiter. Skrifað af Bjössa 22.02.2012 19:22Baddi og Siggi.Í morgun lánaði ég þeim vinnufélugunum Badda og Sigga vinnubílinn sem ég er með og sagði að ég tæki ekki myndavélina úr bílnum því þeir ættu að taka myndir fyrir mig ef þeir sæju gott myndefni. Þeir fengu nú aldeilis gott myndefni þegar Steini GK 45 minnsti báturinn sem Nesfiskur gerir út var að koma í land með 10 tonn á línuna. Ég fór að skoða hvað þeir hefðu tekið af myndum og komst að því að þeir hafa nátturulega ekki getað haldið sjálfir á myndavélinni. Og grunar mig að þeir hafi fengið Pólska aðstoðarmanninn sem þeir fengu líka lánaðan hjá mér til þess að handleika hana. Ekki veit ég á hverju þeir voru en hér kemur það besta;) ![]() Baddi og Siggi. ![]() ![]() Steini GK 45. ![]() ![]() ![]() ![]() Þessi er best af myndunum hjá þeim félögum:) Myndir: Baddi. Siggi . Cesary. Skrifað af Bjössa 21.02.2012 18:37Erika GR 18-119.Ég tók mynd af Eriku í hádeginu í gær í Garðsjó þegar hún var að koma úr Helguvík og í hádeginu í dag sá ég að hún var komin aftur með fullfermi á leið í Helguvík. Vel að verki staðið hjá þeim Íslensk- Grænlenska. ![]() Í hádeginu í gær. 20 febrúar í Garðsjó. ![]() Í hádeginu í dag 21 febrúar í Garðsjó. ![]() ![]() Skrifað af Bjössa 20.02.2012 19:07Mok á línuna.Það er mok veiði á línuna hjá línubátunum sem róa frá Sandgerði þegar gefur á sjó. Tók nokkrar myndir af nokkrum á sjötta tímanum í dag. Dóri GK 42 lagði línuna hér út af Stafnesinu og var hann að skríða að bryggju þegar ég átti leið um. ![]() ![]() Eins og sést er hann vel lestaður. Sennilega ein 11-12 tonn. ![]() Það var handagangur í strákunum þegar þeir voru að landa bolta-fiski á Dóranum. ![]() Hér kemur Freyja KE 100 að landi. ![]() Hafdís SU 220. Skrifað af Bjössa 18.02.2012 21:15Séð frá Stafnesi.Tók nokkrar myndir í dag hér af loðnubátunum Hákon EA 148 og Berki NK 122 þegar þeir fóru hjá. ![]() Börkurinn fer fyrir Stafnes á útleið frá Helguvík. ![]() ![]() Og þarna kemur Hákon að sunnan frá miðunum. ![]() Þarna eru þeir að mætast og sér í Eldey. ![]() Þarna er Hákon kominn á móts við Stafnesið. ![]() Myndirnar eru teknar um hádegi í dag. Skrifað af Bjössa 17.02.2012 22:04Allt og ekkert.Myndir sem ég tók í dag af ýmsu tengt hafinu. ![]() Börkur NK 122 á leið í Helguvík í dag. ![]() Birtingur og Börkur í Helguvík síðdegis í dag. ![]() Hvalaskoðun í Garðsjó í dag. ![]() Fast þeir sækja sjóinn Suðurnesja-menn:) Siglt inn í Sandgerðishöfn síðdegis í dag. ![]() og sækja hann enn. Fleiri myndir í albúmi. Skrifað af Bjössa 17.02.2012 19:58Baldvin Njálsson GK 400.![]() Baldvin Njálson GK 400 á leið úr vari í gær. ![]() Í Garðsjó. ![]() Ægir lét illa í gær. Skrifað af Bjössa 14.02.2012 23:53Framkvæmdirnar ganga vel.Það er allt á fullu í framkvæmdunum við stækkun hjá frystihúsi Nesfisks. ![]() Frystibúnt gert klárt til hífingar. Tæp 4 tonn hvert búnt, þau eru fjögur í frystinn. ![]() ![]() ![]() ![]() Stund milli stríða. Skrifað af Bjössa
Flettingar í dag: 350 Gestir í dag: 106 Flettingar í gær: 226 Gestir í gær: 98 Samtals flettingar: 435315 Samtals gestir: 116710 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 23:09:13 |
Eldra efni
Um mig Nafn: Arnbjörn EiríkssonFarsími: 8937281Tölvupóstfang: arnbje@mi.isAfmælisdagur: 260750Heimilisfang: Nýlenda 2 StafnesiStaðsetning: SandgerðiHeimasími: 4237600Tenglar
|